Brúðkaupsundirbúningurinn 126 dagar til stefnu

Fyrir aðeins nokkrum dögum ákváðum við Reynir að flýta brúðkaupinu okkar um 8 mánuði. Til dagsins sem við hittumst fyrst í afmælinu hennar Svanhvítar árið 2004. Við nenntum ekki að bíða í meira en ár fyrir stóra daginn sem var fyrst ákveðinn 8 ágúst 2009.

 Suðurlandsbraut 4

Undirbúningurinn er búinn að vera lyginni líkast í orðsins fyllstu merkingu!

Á aðeins nokkrum dögum höfum við náð að panta sal í þessu húsi á efstu hæðinni. Með útsýni yfir Reykjavík og Esjuna >

Panta Fríkirkjuna í Reykjavík ásamt viðtali við Séra Hjört fríkirkjuprest.

Redda okkur ljósmyndara fyrir vígsluna, veisluna og brúðkaupsmyndir.

Fyrsti kjólinn sem ég mátaði (með dyggri hjálp frá Aldísi og Hrafnhildi) var kjólinn sem ég pantaði frá Brúðarkjólaleigu Dóru (æðisleg þjónusta). 

Fyrsta skóparið sem ég mátaði voru flottir og þægilegir skór á útsölu í Kaupfélaginu. Auðvitað keypti ég þá.

Við Reynir nýttum útsölurnar í botn í síðustu viku.. Keyptum borðskraut (vanillukerti, blómaljósaseríu og blómavasa) í Ikea á 50% afslætti, Hárskrautið mitt á 75% afslætti í Isis, myndaalbúm og brúðkaupshandbók á 40% afslætti í Next og æðisleg kampavínsglös í Duka sem við eigum eftir að láta grafa í.

Við erum komin með nokkra tónlistarmenn í huga og heildsölu fyrir áfengið.

Síðan fundum við æðislega búð fyrir slysni í kópavoginum sem heitir Litir og föndur og fengum topp þjónustu. Pöntuðum wedding favors box og keyptum boðskortin, límmiða og sápukúlur. Við eigum pottþétt eftir að versla meira þarna.

Siðast en ekki síst.. Reynir kom heim með glitrandi flotta eyrnalokka og hálsmen frá Swarovski.

en það er svooooo margt eftir að gera, panta og kaupa.... það er greinilega heilmikið mál að gifta sig!!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jiiii þetta er svo spennó!! Ég er gjörsamlega að fara yfirum!!! Og kjóllinn... úllallala! segjum ekki meir! ;) Hlakka til að fá að hjálpa og fylgjast með :) Love you guys! :***

Aldís (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 21:53

2 identicon

Frábært að heyra hvað allur undirbúningur gengur dásamlega! Gaman að fá að fylgjast með öllu hér, maður er bara strax orðinn ferlega spenntur fyrir stóra deginum

Endilega látið vita ef það er eitthvað sem við Hrafnkell getum hjálpað til með, I looooooove weddings

Guðfinna (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 08:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brúðkaup Róseyjar og Reynis

Lovebirds

Rósin og Reynir

Trúlofað par, barnlaus, búa í Reykjavík 

Stóri dagurinn 22 nóvember 2008

Nýjustu færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Þau tvö 1794 copy
  • Ljós1 1682
  • Klyppt 1761 1600x1200

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband