1 mánuður!

London Hyde park Fallegur dagur í Hyde Park London

Helgarferðin til London var alveg æðisleg!  Við fengum gott veður nánast allan tímann.. en regnhlífarnar komu líka að góðum notum! Við fórum í sight seeing tour og þutum fram hjá helstu kennileiti borgarinnar.. heimsóttum London Dungeons og létum hræða úr okkur líftóruna.. minnsta kosti hjá mér.. næst kíktum við á risaeðlurnar í  Natural history museum ásamt hálfri bresku þjóðinni.. það var svooo stappað að við flúðum í covent garden og sötruðum á kaffi latte á meðan hópur af hljóðfæraleikurum spilaði klassíska tónlist með slatta af gríni með.. mikið hlegið! 

Á mánudeginum fórum við á söngleikinn Eurobeat sem gerir grín af eurovision og við veifuðum íslenska fánanum óspart alveg þangað til okkar ástkæra þjóð steig á stokk.. bresk söng og leikkona leik íslenska dívu, samblanda af Björk og Sivíu nótt... við sukkum í sætin okkar og fáninn sást varla uppí hjá okkur það sem var kvöldsins.. en mikið hlegið og Rússanir með sitt Boy band vann!

Ekki má gleyma Rándýru ferðinni í madame tussauds (Reynir borgaði með vísa og rukkaður um 298 kr fyrir pundið... þannig að 50 pund vorum næstum 15000 kall fyrir okkur bæði.. áts) en hann fékk að klípa í rassinn hjá Jennifer lopez! og ég Brad pitt.. Kissing

audda setti smá skugga á lok ferðarinnar þegar við fréttum að Landsbankinn væri orðinn ríkiseign og lokað fyrir viðskipti með peningabréf. En þar vorum við með allan brúðkaupspeninginn okkar.. nú er allt óvíst með hann en foreldrar okkar ætla að hjálpa okkur. Nú er bara að vona það besta!

Eftir nákvæmlega 1 mánuð verðum við Reynir orðin Hjón

kveðja Rósin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brúðkaup Róseyjar og Reynis

Lovebirds

Rósin og Reynir

Trúlofað par, barnlaus, búa í Reykjavík 

Stóri dagurinn 22 nóvember 2008

Nýjustu færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Þau tvö 1794 copy
  • Ljós1 1682
  • Klyppt 1761 1600x1200

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband