Færsluflokkur: Dægurmál
27.11.2008 | 08:28
Núna er ég búinn að missa völdin! :o)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.11.2008 | 19:53
veðurspá
Á laugardag: Sunnan- og suðvestanátt. Úrkomusamt, einkum vestantil á landinu og hlýnar talsvert.
Rigning á brúðkaupsdaginn.. það boðar gæfu.. ekki slæmt á þessum síðustu og verstu tímum..
Allt gengur svooo vel, aðeins smá dúllerí eftir. Ég er búin að fara í kjólamátunina og prufuhárgreiðslu og á morgun prufuförðun.. svo á fimmtudaginn dreg ég Reyni með mér í smá brúnku.. (ég held að Reynir kvíði mest fyrir því.. líti ekki eins og appelsína eftir það)
Síðan bættum við á Brúðkaupsgjafalistann hjá Líf og List í Smáralindinni!
Hvílið ykkur vel og hlaðið batterýin fyrir laugardaginn.. Sjáumst eftir nokkra daga!
Rósey
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2008 | 19:12
update...
... vegna "kreppunar" var saltfélagið með varla neitt á lager af brúðargjafalistanum okkar... (en eitthvað þó). Þannig að við skelltum okkur í Líf og list í smáralindinni og bjuggum til gjafalista hjá þeim.. aðrar hugmyndir: leikhús- og tónleikamiða, gjafabréf, ást og umhyggja.
annars gengur allt rosalega vel :)
kveðja brúðhjónin
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2008 | 22:17
Veislustjórar
... í sambandi við ræður og fleira: Aldís aldis_s@simnet.is og Sólrún sola_is@hotmail.com
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2008 | 18:53
19 dagar
biðin mikla... tíminn líður en ekki nógu hratt samt. við höfum verið mikið spurð hvar við séum með brúðargjafalista og þeir eru í búsáhöld í kringlunni og saltfélaginu. við erum að safna í iittala matarstell og glös en vegna kreppunar eru ekki allir hlutirnir til í búðunum. (vonum bara að búðirnar lifi fram að brúðkaupinu
)
Annars er ekkert heilagt að gefa okkur af brúðargjafalistunum við viljum bara allir skemmti sér vel og njóti sín í brúðkaupinu okkar! þetta verður aðal KreppuBallið í nóvember!
Ps.. Hlutabréf í bönkunum afþökkuð
Pss.. Undirbúningurinn gengur mjög vel!
Kveðja Rósey og Reynir
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2008 | 18:12
1 mánuður!
Fallegur dagur í Hyde Park London
Helgarferðin til London var alveg æðisleg! Við fengum gott veður nánast allan tímann.. en regnhlífarnar komu líka að góðum notum! Við fórum í sight seeing tour og þutum fram hjá helstu kennileiti borgarinnar.. heimsóttum London Dungeons og létum hræða úr okkur líftóruna.. minnsta kosti hjá mér.. næst kíktum við á risaeðlurnar í Natural history museum ásamt hálfri bresku þjóðinni.. það var svooo stappað að við flúðum í covent garden og sötruðum á kaffi latte á meðan hópur af hljóðfæraleikurum spilaði klassíska tónlist með slatta af gríni með.. mikið hlegið!
Á mánudeginum fórum við á söngleikinn Eurobeat sem gerir grín af eurovision og við veifuðum íslenska fánanum óspart alveg þangað til okkar ástkæra þjóð steig á stokk.. bresk söng og leikkona leik íslenska dívu, samblanda af Björk og Sivíu nótt... við sukkum í sætin okkar og fáninn sást varla uppí hjá okkur það sem var kvöldsins.. en mikið hlegið og Rússanir með sitt Boy band vann!
Ekki má gleyma Rándýru ferðinni í madame tussauds (Reynir borgaði með vísa og rukkaður um 298 kr fyrir pundið... þannig að 50 pund vorum næstum 15000 kall fyrir okkur bæði.. áts) en hann fékk að klípa í rassinn hjá Jennifer lopez! og ég Brad pitt..
audda setti smá skugga á lok ferðarinnar þegar við fréttum að Landsbankinn væri orðinn ríkiseign og lokað fyrir viðskipti með peningabréf. En þar vorum við með allan brúðkaupspeninginn okkar.. nú er allt óvíst með hann en foreldrar okkar ætla að hjálpa okkur. Nú er bara að vona það besta!
Eftir nákvæmlega 1 mánuð verðum við Reynir orðin Hjón
kveðja Rósin
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2008 | 22:02
London á morgun!
Við skötuhjúin ætlum að skella okkur til London með kaffivélinni (kl 16 flug) á morgun..
og ekki verra að gengið er svakalega hagstætt (sölugengið á pundinu aðeins 210 kr!!!!) miklu auðveldara að margfalda núna... 5 pund eru 1000 kr.. :) við ætluðum að kíkja í brúðkaupsbúðir en látum það alveg vera núna.. njótum bara lífsins og förum í öll söfnin sem eru með ókeypis aðgangseyri! svo kostar ekkert að labba um Hyde park og njóta haustlitanna..
ps.. 50 dagar í brúðkaupið!!!!!

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2008 | 11:33
Rósey Gæs
..vaknaði í algjörri sæluvímu í morgun.. vá hvað það var gaman í gær!!!!! TAKK ÆÐISLEGA FYRIR MIG!
trúi varla að dagurinn hafi verið svona fljótur að líða og hann sé búinn! *grát*
hlakka til að sjá afraksturinn á video í brúðkaupinu.
kv rósin
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.9.2008 | 19:30
Biðin mikla..
tíminn er svoo fljótur að líða og einnig svoo lengi að líða.. 78 dagar eftir!!
Við skutluðum kökuspaðanum og kökuhnífnum í áletrun í dag.. ætlum að láta grafa brúðkaupsdaginn og nöfnin okkar á hann.
síðan fórum við í gær í saltfélagið og búsáhöld í kringlunni og skráðum okkur á brúðkaupsgjafalista þar.. (engin skylda að fara eftir listunum) við völdum bara Finnskar gæðavörur Iittala! diskastellið frá þeim er bara snilld.. ég ólst upp með þessa diska og margoft lentu þeir á gólfið en brotnuðu ekki.. top gæði.. og þið vitið hva ég er mikill klaufi!!!! (ef það væru dregin af mér laun fyrir allt sem ég hef brotið í gegnum tíðina... þá væri það ansi há upphæð.!!!!
Brúðkaupsföndrið gekk svooo vel.. Takk æðislega stelpur fyrir hjálpina!!!! nýjar myndir.
Reynir downloadaði Made of Honor. Videokvöld bráðlega?? anyone game?
Búið að redda brúðarmeyjukjólunum!!! jej.. :D Rakel og Fríða verða svoooo sætar!!!!
Kv. Rósey
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Brúðkaup Róseyjar og Reynis
Nýjustu færslur
- 27.11.2008 Núna er ég búinn að missa völdin! :o)
- 21.11.2008 1 dagur
- 18.11.2008 veðurspá
- 5.11.2008 update...
- 4.11.2008 Veislustjórar
- 3.11.2008 19 dagar
- 25.10.2008 1 mánuður!
Tenglar
Gjafalistar
- Saltfélagið Glös
- Búsáhöld matarstell
- Iittala Saltfélagið rauðvínsglös og fleira
- Iittala Búsáhöld Kringlunni matardiskar og fleira
Mínir tenglar
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar