Færsluflokkur: Dægurmál

Smá villa í boðskortinu

Í boðskortinu stendur að veislan er haldin í Suðurlandsbraut 4a.
Það er ekki rétt og endilega breytti því í Suðurlandsbraut 4.
Fáið ykkur tipp-ex og eyðið "a-ið"

Annars gengur allt vel hjá okkur, nóg að gera og spennandi hlutir framundan.


100 dagar!

Tíminn flýgur og ekki nema 100 dagar í brúðkaupið!! undirbúningurinn gengur svooo vel en við eigum ennþá eftir að finna tónlistarmann í kirkjuna og ýmislegt annað.. en stærstu hlutirnir eru "under control" Grin 

 

 


brúðkaupsgrín

passa hvar maður setur höndina.. ekki of neðarlega annars er mömmu að mæta


Brúðkaupsundirbúningurinn 126 dagar til stefnu

Fyrir aðeins nokkrum dögum ákváðum við Reynir að flýta brúðkaupinu okkar um 8 mánuði. Til dagsins sem við hittumst fyrst í afmælinu hennar Svanhvítar árið 2004. Við nenntum ekki að bíða í meira en ár fyrir stóra daginn sem var fyrst ákveðinn 8 ágúst 2009.

 Suðurlandsbraut 4

Undirbúningurinn er búinn að vera lyginni líkast í orðsins fyllstu merkingu!

Á aðeins nokkrum dögum höfum við náð að panta sal í þessu húsi á efstu hæðinni. Með útsýni yfir Reykjavík og Esjuna >

Panta Fríkirkjuna í Reykjavík ásamt viðtali við Séra Hjört fríkirkjuprest.

Redda okkur ljósmyndara fyrir vígsluna, veisluna og brúðkaupsmyndir.

Fyrsti kjólinn sem ég mátaði (með dyggri hjálp frá Aldísi og Hrafnhildi) var kjólinn sem ég pantaði frá Brúðarkjólaleigu Dóru (æðisleg þjónusta). 

Fyrsta skóparið sem ég mátaði voru flottir og þægilegir skór á útsölu í Kaupfélaginu. Auðvitað keypti ég þá.

Við Reynir nýttum útsölurnar í botn í síðustu viku.. Keyptum borðskraut (vanillukerti, blómaljósaseríu og blómavasa) í Ikea á 50% afslætti, Hárskrautið mitt á 75% afslætti í Isis, myndaalbúm og brúðkaupshandbók á 40% afslætti í Next og æðisleg kampavínsglös í Duka sem við eigum eftir að láta grafa í.

Við erum komin með nokkra tónlistarmenn í huga og heildsölu fyrir áfengið.

Síðan fundum við æðislega búð fyrir slysni í kópavoginum sem heitir Litir og föndur og fengum topp þjónustu. Pöntuðum wedding favors box og keyptum boðskortin, límmiða og sápukúlur. Við eigum pottþétt eftir að versla meira þarna.

Siðast en ekki síst.. Reynir kom heim með glitrandi flotta eyrnalokka og hálsmen frá Swarovski.

en það er svooooo margt eftir að gera, panta og kaupa.... það er greinilega heilmikið mál að gifta sig!!!!!


« Fyrri síða

Um bloggið

Brúðkaup Róseyjar og Reynis

Lovebirds

Rósin og Reynir

Trúlofað par, barnlaus, búa í Reykjavík 

Stóri dagurinn 22 nóvember 2008

Nýjustu færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Þau tvö 1794 copy
  • Ljós1 1682
  • Klyppt 1761 1600x1200

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband